Fréttir

Þorrablót Gnúpverja í Árnesi 20. jan.

Þorrablót Gnúpverja verður haldið í Árnesi föstudaginn 20. janúar 2017.  Fyrsta Þorradag. Húsið opnað kl: 20:00 og dagskráin hefst kl: 20:45 Miðaverð: 6.500,- Miðapantanir: Bente s:  892 0626  Bjarni s: 862 4917Pantanir þurfa að berast fyrir þriðjudagskvöldið 17. jan. Fólk er beðið um að stilla miðapöntunum í hóf.  Afhending miða fer fram í Árnesi fimmtudaginn 19.jan milli kl. 18:00 og 20:00. Hægt er að greiða miðana með því að leggja inn á  reikningsnr:  0325-26-1243 kennitala: 181286-3699. Munið að senda kvittun á netfangið josefine@tolt.nu

Fréttabréf janúar komið út

Fréttabréf  janúar  er komið úr lesa hér Þorrablótsauglýsing á forsíðu skoðið hana. Skoðið eðluna á bak við eldvélina og  fullt af öðru efni eins og venjulega. 

AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL

Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi

Aðalskipulagsmál

Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt niðurstaða sveitarstjórnar varðandi eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu: 

Kveðjuhóf til heiðurs Gylfa og Pétri 12. jan. í Aratungu kl.19:00

Læknarnir í Uppsveitum Árnessýslu til meira en 30 ára, þeir Gylfi Haraldsson og Pétur Skarphéðinsson hafa nú látið af störfum. Þeir hafa verið einstaklega farsælir í sínum störfum og hlúð að heilsufari íbúanna með miklum sóma. Það má því ekki minna vera en þeir verði heiðraðir með kveðjuhófi. Hófið verður haldið fimmtudaginn 12 janúar nk. í Aratungu með fjölbreyttri dagskrá og kaffiveitingum og hefst það kl 19:00. Veislustjóri verður Halldór Páll Halldórsson rektor Menntaskólans á Laugarvatni. Við vonumst til að íbúar í læknishéraðinu sjái sér fært að mæta.

Grá hryssa í óskilum að Reykjum á Skeiðum.

Þessi hryssa er ca 10 vetra, ekki verið á járnum í sumar og  mjög spök. Hefur verið í högum Reykja um þó nokkurn tíma. Hún gæti hafa verið fædd  brún, þar sem aðeins vottar fyrir litnum í faxi og tagli og hún er frekar nett.  Eigandinn er góðfúslega beðinn um að vitja hennar og getur hringt í síma 486-6100 og fengið nánari upplýsingar. 

Lögreglustjóri með fríðu föruneyti

Sjálfur Lögreglustjórinn á Suðurlandi Kjartan Þorkelsson heimsótti sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps  miðvikudaginn 4 janúar. Með honum í för var Oddur Árnason yfirlögregluþjónn á Suðurlandi og Víðir Reynisson verkefnastjóri í Almannavörnum á Suðurlandi. Þeir félagar munu sækja allar sveitarstjórnir á Suðurlandi í á yfirstandandi vetri. Þeir greindu frá helstu verkefnum. Meðal annars  var rætt um umferðareftirlit og átak gegn heimilisofbeldi. Komið var inn á skyldur sveitarstjórnarmanna samkvæmt Almannavarnarlögum.

Opnunartímar skrifstofu um jól og áramót!

30. desember opið  10—12   - 02. janúar 2017 opið eins og venjulega kl. 09—12 og 13—15.  Opnunartímar skrifstofu eru mánudaga - fimmtudaga kl. 09 - 12 og 13 - 15 föstudaga kl. 09 - 12. Gleðilegt nýtt ár með þökkum fyrir það sem er að líða. Starfsfólk skrifstofu.

Matráður í tímabundið starf í Árnesi

Skeiða- og Gnúpverjahreppur óskar eftir matráði sem fyrst í mötuneyti grunn- og leikskóla. Um tímabundna afleysingu er að ræða vegna veikindaforfalla. Nánari upplýsingar veitir Kristófer Tómasson sveitarstjóri sími 486-6100 og 861-7150. Netfang : kristofer@skeidgnup.is

Spennandi tækifæri fyrir réttan rekstraraðila í Árnesi

Skeiða- og Gnúpverjahreppur óskar eftir tilboðum í Útleigu á félagsheimilinu Árnesi, tjaldsvæði við Árnes ásamt rekstri mötuneytis fyrir skóla og  grunnskóla sveitarfélagsins samkvæmt meðfylgjandi gögnum og öðrum þeim gögnum sem vísað er til.

1.      Kynning útboðs. Útboð þetta  er auglýst á heimsíðu sveitarfélagsins, í héraðsblöðum og Morgunblaðinu á tímabilinu 17- 31 desember 2016.

Fréttabréf desember komið út

Jæja, þá er síðasta Fréttabréf Skeiða- og Gnúpverjahrepps ársins 2016 komið út - lesa hér.    Bendi á auglýsingu um kveðjuhóf til heiðurs þeim Gylfa og Pétri lækna okkar í Laugarási til  fjölda ára á bls. 4 - Opnunartímar skrifstofu og auglýsing um þrettándabrennu  á bls. 5 - Pistill sveitarstjóa bls.6  - Jólaball og Ný lög um húsaleigubætur á bls. 7 - Helgihald um jól  bls 15. - og   36. fundargerð sveitarstjórnar á  bls. 16 og fleira og fleira.