Fréttabréf nóvember 2015 komið út
Fréttabréf nóvember 2015 má lesa hér Þar er ýmislegt að finna eins og fréttir af Skeiðalaug 40 ára, 21. fundargerð sveitarstjórnar, athugasemdir við bókun, Hrunaprestakall, þakkir til starfsmanns og margt fleira.
Fréttabréf nóvember 2015 má lesa hér Þar er ýmislegt að finna eins og fréttir af Skeiðalaug 40 ára, 21. fundargerð sveitarstjórnar, athugasemdir við bókun, Hrunaprestakall, þakkir til starfsmanns og margt fleira.
Boðað er til fundar í sveitarstjórn Skeiða-og Gnúpverjahrepps í Árnesi miðvikudaginn 04 nóvember 2015 kl. 14:00.
Dagskrá:
Mál til umfjöllunar:
1. Fjárhagsáætlun 2016 og 2016-2019, fyrri umræða
2. Fjárhagsáætlun 2015 viðaukar.
3. Tillaga að útsvarsprósentu og fasteignagjöldum.
Vissir þú að: Ekki má henda: tannþræði, lyfjum, blautþurrkum, smokkum, dömubindum, tyggjói, hári, bleyjum, gullfiskum, kreditkortum, leikföngum eða öðru rusli í klósettið. Í Uppsveitum Árnessýslu er rotþró við hvert hús eða hús tengd skolpkerfi sem svo tengist við hreinsistöð sem safnar seyrunni. Sorpið sem fer í klósettið fer sömu leið og safnast þar saman og fer síðan beina leið í skólphreinsibílana sem safna saman seyrunni. Sveitarfélögin í Uppsveitum Árnessýslu hafa sameinast um að nýta seyruna sem safnast saman til uppgræðslu á afgirtum afrétti, en þetta er gert í samvinnu við Landgræðslu ríkisins og hefur þegar gefið góða raun. Vandinn við þetta er allt sorpið sem berst með og sérstaklega blautþurrkurnar sem notaðar eru til þrifa og ýmissa annarra verka. Aðeins næst að hreinsa hluta af þessu rusli frá seyrunni og fer því hluti af ruslinu alla leið í gegn. Vegna þessa má líkja því að henda sorpi í klósettið við það að henda því á víðavangi!! Með kveðju. Tæknisvið Uppsveita Árnessýslu.
Samkvæmt 3. mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt sameiginleg lýsing á skipulagsáformum ásamt matslýsingu skv. lögum um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Hvammsvirkjun, deiliskipulag virkjunar í Þjórsá. Sveitastjórnir Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps hafa samþykkt að kynna lýsingu vegna áforma um deiliskipulag fyrir Hvammsvirkjun. Framkvæmdasvæði Hvammsvirkjunar er í báðum sveitarfélögunum. Stöðvarmannvirki verða í landi Hvamms í Rangárþingi ytra, en stíflumannvirki og lón munu taka yfir land í ofanverðri Landsveit og í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Ofantalin lýsing er til kynningar á opnunartíma hjá Skipulagsfulltrúum ofangreindra sveitarfélaga, og á heimasíðum sveitarfélaganna Rangárþings ytra, www.ry.is og Skeiða- og Gnúpverjahreppur www.skeidgnup.is Kynningu lýkur miðvikudaginn 4. nóvember, klukkan 15.00.
Í dag, þann 20. október er síðasti dagur til þess að skila inn tillögu að nýju nafni á sveitarfélagið. Koma má með tillögur á skrifstofu í Árnesi til kl. 16:00 og ef tillaga er send með Íslandspósti miðast móttaka við stimpil á umslagi. Einnig mun sveitarstjóri taka við tillögum eftir lokun skrifstofu til kl. 22:00 í kvöld og má þá hafa samband við hann í síma 861-7150.
Á opnunartíma skrifstofu sveitarfélagsins í Árnesi frá kl. 09-12 og 13-15 mánudaga - fimmtudaga og föstudaga kl. 09 12 liggur frammi skýrsla um mat a umhverfisáhrifum Búrfellslundar. Skýrsluna er hægt að lesa þar.
Flúðaskóli auglýsir eftir enskukennara í 50 % starf í 6 vikur frá og með 19. október 2015. Um er að ræða 10 kennslustundir í ensku á yngsta – og miðstigi og 3 kennslustundir stuðningskennsla. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Pétursdóttir skólastjóri í síma 480 6610 eða í tölvupósti gudrunp@fludaskoli.is
Leikskólinn Leikholt óskar eftir að ráða leikskólakennara frá og með 1. nóvember 2015. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt og leiða áfram gott faglegt starf í skólanum.
Menntun og hæfniskröfur:
Kaldavatnslaust var í Árnesveitu vegna bilunar í dælu en er nú komið að mestu aftur.
Viðgerð er lokið í bili og beðist er velvirðingar á þeim óþægindum er af þessu hlutust en einhverjir mega þó enn búa við lélegan þrýsting en vonandi verður það þó ekki mjög lengi en gæti orðið fram á morgundaginn.
Leikskólinn Leikholt óskar eftir að ráða leikskólakennara frá og með 1. nóvember 2015. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt og leiða áfram gott faglegt starf í skólanum.
Menntun og hæfniskröfur:
Meginverkefni:
Frekari upplýsingar veitir Elín Anna Lárusdóttir, sími 486-5586/895-2995 og áhugasamir geta sent umsóknir á netfangið leikskoli@skeidgnup.is.