Fréttabréf febrúar 2016 komið út
Fréttabréf febrúar er komið út lesið hér Heilmikið um að vera í kringum okkur. Fundargerð, Ferðamálaþing, Uppsveitadeildin hefst, Yoga og margt fleira.
Fréttabréf febrúar er komið út lesið hér Heilmikið um að vera í kringum okkur. Fundargerð, Ferðamálaþing, Uppsveitadeildin hefst, Yoga og margt fleira.
Creditinfo hefur um árabil veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu. Þau skilyrði sem fyrirtæki þurfa að uppfylla til að hljóta slíka vegtyllu eru nokkur. Þau þurfa að vera skráð hlutafélög, hafa skilað ársreikningum síðustu þriggja ára og þau þurfa að hafa skilað hagnaði næstliðin þrjú ár. Líkur á vanskilum þurf að vera hverfandi litlar. Jafnframt þarf eiginfjárhlutfall félaganna að vera 20% eða meira þrjú rekstrarár í röð. Skilyrði era að eignir séu ekki undir 80 milljónum króna þrjú ár í röð.
Skákdagurinn haldinn um land allt 26. janúar. Dagurinn er tileinkaður Friðriki Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga í skák. Þjórsárskóli tók þátt í þessum viðburði og haldið var skákmót í skólanum. Nemendum var skipt í tvo hópa, eldri og yngri. Teflt var á 8 borðum í eldri deild og 12 borðum í yngri deild. Mikil spenna myndaðist þegar að síðustu einvígin voru háð. Í eldri deild vann Þrándur Ingvarsson, Þrándarholti 4 og í yngri deild vann Magnús Arngrímur Sigurðsson, Skarði. Við óskum meisturnum innilega til hamingju.
Fréttabréf janúar er komið út. Lesið hér. Ýmsar auglýsingar og fréttir að venju t.d auglýsing um umsóknarfrest í Atvinnuppbyggingarsjóð Skeiða- og Gnúpverjahrepps, um aðalfund Hestamannafélagsins Smára, helgihaldið vetur vor og sumar, reiðnámskeið fyrir börn og unglinga o.fl. kíkið á það. Gleðilegt nýár.
Kjörfundi um kosningu um nafn á sveitarfélagið sem borið hefur heitið Skeiða- og Gnúpverjahreppur er lokið og liggja úrslit fyrir. Á kjörskrá voru 397. Atkvæði greiddu 209 eða 52,6 % af þeim sem voru á kjörskrá. Atkvæði féllu á þann vega að 111 kusu nafnið Skeiða- og Gnúpverjahreppur það eru 53,11 % greiddra atkvæða. 45 kusu Þjórsárhrepp það gera 21,53 %, 40 kusu Þjórsársveit eða 19,14 %, 8 kusu Þjórsárbyggð. Eystribyggð fékk 2 atkvæði. Þjórsárbakkar og Eystri hreppur fengu sitt atkvæðið hvort. Einn seðill var ógildur. Það er því ljóst að sveitarfélagið Skeiða- og Gnúpverjahreppur mun ekki skipta um nafn að svo stöddu. Sveitarstjóri.
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi Aðalskipulagsmál
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu:
Kosning um nafn á sveitarfélagið verður þann 9. janúar í Bókahúsinu Brautarholti. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 18:00. Hafið skilríki tiltæk á kjörstað. Hægt er að kjósa utan kjörfundar á opnunartímum skrifstofunnar í Árnesi fyrstu viku ársins þ.e. mánudag - fimmtudags kl. 09 -12 og 13-15 og föstudaginn 8. jans kl. 9- 12. Örnefnanefnd hefur kveðið upp úrskurð um hver þeirra átta nafna sem tillögur bárust um sé heimilt að nota. Einu nafni var hafnað, Vörðubyggð.
Skrifstofa sveitarfélagsins í Árnesi verður lokuð á gamlársdag og opnað aftur þann 4. janúar 2016 kl. 09:00 og þá opið með venjubundnum hætti. Ef neyðartilvik koma upp er sími sveitarstjóra 861-7150. - Bestu óskir um farsæld á nýju ári og þökk fyrir samskiptin á árinu 2015.
Sveitarstjórn og starfsfólk Skeiða - og Gnúpverjahrepps.
Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu var undirrituð föstudaginn 11. desember í sal slökkviliðsins í Björgunarmiðstöðinni. Það voru sveitarstjórar í sýslunni eða fulltrúar þeirra ásamt formanni fagráðs BÁ, forstjóra Mannvirkjastofnunar og settum slökkviliðsstjóra BÁ Selfossi sem munduðu pennann af því tilefni. Áætlunin er búin að vera í vinnslu um allnokkurt skeið. Fyrir undirritun áætlunarinnar var hún tekin fyrir af öllum sveitarstjórnum í Árnessýslu þar sem hún hlaut samhljóða samþykki. Brunavarnaáætlun er grunnur að gæðastjórnun og jafnframt úttekt á starfseminni og reglugerð til notkunar fyrir þá sem ábyrgð bera á brunavarnamálum sveitarfélaganna sem að áætluninni standa. Sveitarstjóri. Brunavarnaáætlun. Lesa hér